Nokia 603 - Ábendingar um myndatöku

background image

Ábendingar um myndatöku
Haltu myndavélartakkanum inni til að opna myndavélina.

Nota skal báðar hendur til að halda myndavélinni kyrri.

Ef myndavélin er ekki notuð í u.þ.b. mínútu fer hún í hvíld. Ýttu á

myndavélartakkann í stutta stund til að kveikja aftur á myndavélinni.

Til að ná myndum eins og þú vilt hafa þær geturðu valið úr þremur mismunandi

tökustillingum:

Notaðu Sjálfvirk ef þú vilt láta myndavélina velja bestu stillinguna. Það eina sem

þú þarft að gera er að beina myndavélinni að myndefninu og smella af.

Stillingin Umhverfi hentar fyrir mismunandi myndumhverfi.

Dæmi: Landslagsmynd: til að ná fjarlægu landslagi í fókus. Snjóstilling: fyrir mjög

bjart/hvítt umhverfi. Kastljósstilling: á tónleikum þar sem flytjandinn er baðaður

sviðsljósum, þar sem bakgrunnur er dökkur.

Með Skapandi geturðu tilgreint eigin stillingar og vistað þær til síðari nota.

Myndavél og myndir

75

background image

Til að skipta um tökustillingu velurðu . Pikkaðu hægra megin á skjáinn til að loka

stillingunum ef þess er þörf.