Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan kemur hlaðin að hluta til frá framleiðanda, en ef til vill þarf að endurhlaða
hana áður en hægt er að kveikja á símanum í fyrsta skipti.
Ef síminn sýnir að rafhlaðan sé að tæmast skaltu gera eftirfarandi:
Ábending: Ef engin rafmagnsinnstunga er til staðar er hægt að hlaða í gegnum USB-
tengið. Notaðu samhæfa USB-gagnasnúru til að tengja símann við samhæft tæki eins
og tölvu. Hægt er að afrita gögn meðan á hleðslu stendur.
Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur notað símann á meðan
hann er í hleðslu.
Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist eða
þar til hægt er að hringja.