Nokia 603 - Um Bluetooth

background image

Um Bluetooth

Veldu >

Stillingar

>

Tengingar

>

Bluetooth

.

Hægt er að koma á þráðlausri tengingu við önnur samhæf tæki, svo sem síma, tölvur,

höfuðtól og bílbúnað.

Hægt að nota tenginguna til að senda hluti úr símanum, afrita skrár af samhæfri tölvu

og prenta skrár með samhæfum prentara.

Tengingar 105

background image

Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin ekki

að vera í beinni sjónlínu hvert við annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan við 10

metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni vegna

hindrana eins og veggja eða annarra raftækja.

Þegar síminn er læstur er aðeins hægt að tengjast við samþykkt tæki.

Ábending: Einnig er hægt að stjórna Bluetooth-tengingum í stöðuvalmyndinni. Til að

opna stöðuvalmyndina skaltu strjúka niður eftir tilkynningasvæðinu og velja

Bluetooth

. Ef Bluetooth birtist ekki skaltu velja .

Ábending: Þú getur bætt Bluetooth-græju við heimaskjáinn. Veldu græjuna til að

kveikja eða slökkva á Bluetooth á skjótan hátt.

Notkun tækisins í falinni stillingu er öruggari leið til að forðast hættulegan hugbúnað.

Ekki skal samþykkja beiðnir um Bluetooth-tengingar frá aðilum sem ekki er treyst. Þú

getur líka slökkt á Bluetooth þegar það er ekki í notkun.