Nokia 603 - Hringt í neyðarnúmer

background image

Hringt í neyðarnúmer
1

Gæta skal þess að kveikt sé á tækinu.

2

Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur er fyrir hendi. Einnig kann að vera nauðsynlegt að gera eftirfarandi:

Settu SIM-kort í tækið.

Slökktu á símtalatakmörkunum sem eru virkar í tækinu, svo sem útilokun, föstu númeravali og lokuðum

notendahópi.

Gættu þess að ótengt snið og flugsnið séu ekki virk.

Taktu skjá og takka tækisins úr lás, hafi þeim verið læst.

3

Ýttu endurtekið á hætta-takkann þar til heimaskjárinn birtist.

4

Númeravalið er opnað með því að velja

.

5

Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Númer neyðarhringinga eru breytileg eftir stöðum.

6

Styddu á hringitakkann.

7

Gefðu nauðsynlegar upplýsingar með eins nákvæmum hætti og hægt er. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi

til þess.

Þegar kveikt er á tækinu í fyrsta skipti er beðið um að stofnuð sé Nokia-áskrift. Ef hringja þarf neyðarsímtal meðan áskrift

er stofnuð skal ýta á hringitakkann.

Mikilvægt: Kveikja skal bæði á hringingum um farsímakerfið og internetið, ef tækið styður símtöl um internetið. Tækið

reynir bæði að koma á neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala. Ekki er hægt að tryggja tengingar

við hvaða skilyrði sem er. Aldrei skal treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í

bráðatilvikum.