Nokia 603 - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera sprengihætta, svo sem við eldsneytisdælur á bensínstöðvum.

Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Virða skal

takmarkanir á eldsneytisstöðvum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem

verið er að sprengja. Svæði þar sem kann að vera sprengihætta eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði

þar sem ráðlegt er að slökkt sé á vél bifreiðar, í farrýmum skipa, í efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni eða

agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft, gæti verið í lofti. Hafa skal samband við framleiðendur ökutækja sem nýta fljótandi

svartolíugas (própan eða bútan) til að komast að því hvort nota megi tækið í grennd við þau.